Vagnadelluklúbbur-Vagnaklúbbur
Barnavagnaklúbbur eða?
Í gegnum tíðina hef ég kynnst ágætu fólki sem hefur sama undarlega áhuga á barnavögnum og ég.
Ég gekk í vagnadelluklúbba sem starfræktir eru í netheimum og hafa félaga víðsvegar um veröldina.Tilgangur starfsemi vagnaklúbba er að deila upplýsingum, varahlutum, ráðum, þekkingu og myndum af vögnum í eigu félaga.
Í vagnadellu klúbbum er að finna konur og karla sem hafa áhuga á að varðveita upprunaleg eintök af barnavögnum frá því fyrir 1980. Rétt eins og Fornbílaklúbbur Íslands og meðlimir hans hafa áhuga á að varðveita bifreiðar og sögu þeirra.
Eins og með söfnunaráráttu eru margar hliðar á vagnadellu, sumir safna ákveðnum framleiðendum, gerðum (módelum), litum eða vögnum frá ákveðnum tímabilum. Ein af vagnadelluklúbbnum gaf leyfi til að birta myndir úr persónulegu safni hennar, Jane safnar vögnum frá Viktoríu tímabilinu. Vil hér með þakka Jane Kirwood fyrir.
Allar myndir á síðunni eru úr safni Jane Kirwood
[Jane Kirkwood© published with permission]
Hitching ca 1903-1914




English mailcart ca 1890-1900

Þessi útfærsla af vagni var talin nútíma uppfinning ca 1870. Þótti sérstakt að nota þriggja hjóla vagna.

Reedwork vagn ca 1900

Fyrsti vagninn sem Jane eignaðist er frá 1870-80.
Skermurinn hefur verið endurgerður.

This one has a brass plaque underneath says Simpson and Fawcet 1880.
That was the makers name, its a double handle with
1 suspension chasis running under it.
E


