Hvað er svona merkilegt við barnavagna?

Vagn í eigu Jane Kirkwood

Tilgangur þessar vefsíðu er að sýna inn í þann heim sem fæstir spá í en á sér langa sögu. Sjálfsagt hafa all flestir notað barnavagn einhvern tíma á lífsleiðinni. Þvílikt þarfaþing sem uppfinningin var fyrir almenning, þarf varla að draga í efa.

En eins og svo margt annað voru barnavagnar ekki almenningeign fyrr en fjöldaframleiðsla þeirra hófst. Framan af voru það einungis efnameiri fjölskyldur sem höfðu ráð á að láta smíða fyrir sig "barnavagn" 

Sögu barnavagna er hægt að rekja nokkrar aldir eða til átjándu aldar. Framan af voru barnavagnar í bókstaflegri merkingu útlítandi eins og "vagnar".

Vagnarnir voru lengst af með tvö hjól og tvö "handföng" á sitt hvorri hlið vagnsins. Fyrirmyndina var að finna í vagnkerrum sem fólk ýtti á undan sér til að ferja farm, t.d matvæli, gras eða hvað eina sem þurfti að koma milli staða. Efniviður í barnavagna var meðal annars;

Járn, reyr, bast, leður, ofin efni, hrosshár og hey.

 

Bastvagn í eigu Jane Kirkwood

 


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 síða uppfærð 2.ágúst.2010


Fjöldi fléttinga á vefsíðu